|
|
||||||
|
|
|
|||||
|
|
17. maí 2010 Interzoo er stærsta vörusýning í heimi með gæludýravörur og er haldin á 2ja ára fresti í Nürnberg í Þýskalandi. Þeir Gísli og Atli frá Vetis heimsóttu sýninguna í ár í annað sinn. Þeir fóru m.a. á mjög fróðlegan fyrirlestur hjá Bewital um gæludýrafóður og heimsóttu básana hjá aðalbirgjum Vetis. MYNDIR 28. júní 2009 Námskeið í ómskoðun á vegum Vetis og Eickemeyer Dagana 26. - 28. hélt Vetis í samvinnu við Eickemeyer námskeið í ómskoðun hunda og katta í Dýrasetrinu Reykjanesbæ. Kennari á námskeiðinu var Fritz Hartmann dýralæknir frá Þýskalandi og leiðbeinendur voru þau Per Riber Rasmussen frá Eickemeyer í Danmörku, Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir og Hilma Hólm sérfræðingur í hjartalækningum. Atli Þorsteinsson og Kristín Davíðsdóttir eigendur Dýrasetursins sáu um þjónustu og utanumhald um námskeiðið. Alls 34 dýralæknar víðs vegar af landinu sóttu námskeiðið. Myndir. 1. júní 2009 Sala á gæludýravörum hafin í verslunum Samkaupa á Suðurnesjum Samningar um sölu á fóðri og gæludýravörum náðust á milli Samkaupa og Vetis og hafin er nú sala á Bewidog, Bewicat og Dogland fóðri og gæludýravörum frá Nobby í verslunum Samkaupa á Suðurnesjum. 31. mars 2008 Tvö ný fóðurbætiefni skráð - EFA Prescription - Fóðurbætiefni fyrir hunda og ketti. Inniheldur hátt hlutfall lífsnauðsynlegra ómettaðra fitusýra og kemur í veg fyrir þurra húð og mattan feld. Dregur úr hárlosi. Nánari upplýsingar um EFA Prescription (pdf) - Kalsíum + ADE - Fóðurbætiefni fyrir mjólkurkýr til gjafar um munn. Gefið kúm sem hættir við að fá doða og eins eftir meðhöndlun dýralæknis. Nánari upplýsingar um Kalsíum + ADE (pdf) 14. f ebrúar 2008 VetiCare - nýtt fóðurbætiefni á skrá VetiCare (kemur í stað Arthrocare) er fyrir dýr með viðkvæma liði (liðaskemmdir) og dýr í mikilli þjálfun, svo og eldri dýr. Nánari upplýsingar um VetiCare (pdf) 15. ágúst 2006: Dýralæknaþing Vetis veitti styrk til sumarþings Dýralæknafélags Íslands sem haldið var að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði dagana 11. og 12. ágúst. Dýralæknirinn Nanna Lúthersson kom á vegum Vetis frá Danmörku og hélt erindi og verklegt námskeið um tannlækningar hrossa.
23. júní 2006: Ný heimasíða opnuð Ný heimasíða hefur nú verið tekin í notkun en hún er enn í vinnslu. Ætlunin er að hér verði að finna allar helstu upplýsingar um þær vörur sem Vetis flytur inn. Auk þess verða birtar fréttir af fyrirtækinu.
|
|
|||
VETIS
- FLUGVÖLLUM 6 - 230 REYKJANESBÆR - SÍMI 421 8005
/ FAX 421 8006 / GSM 862 9005 |
||||||